Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Keilusíða 8e

603 Akureyri

37.900.000 kr.

560.651 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2148207

Fasteignamat

32.750.000 kr.

Brunabótamat

33.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
67,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Keilusíða 8e, 600 Akureyri - rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð á góðum stað í Síðuhverfi - Stærð 67,6 m², þar af telur geymsla 5,7 m²

Eignin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og sér geymslu í kjallara.

Forstofan er með parketi á gólfi og þaðan er gengið inn í öll rými íbúðarinnar.
Eldhúsið er með parketi á gólfi, flísum á milli skápa og upprunalegri viðarinnréttingu með stæði fyrir ísskáp.
Stofan er með parketi á gólfi og þaðan er gengið út á rúmgóðar steyptar vestur svalir.
Svefnherbergið er með parketi á gólfi, fjórföldum fataskáp og glugga til vesturs.
Baðherbergið er flísalagt með dökkum flísum á gólfi og ljósum á veggjum. Ljós innrétting er á baðinu sem og wc og baðkar með sturtutækjum.
Sér þvottahús/geymsla er innan íbúðar með hillum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara
Sér geymsla er í kjallara skráð 5,7 m² að stærð

Annað:
- Eignin er vel staðsett, stutt er í leik- og grunnskóla. 
- Rúmgóð sameignarrými eru í kjallara sem og hjóla og vagnageymsla
- Ljósleiðari er komin inn og tengdur
- Nýlegt dyrasímakerfi er í stigaganginum
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. des. 2013
10.500.000 kr.
862.050.000 kr.
4711.4 m²
182.971 kr.
12. des. 2007
9.326.000 kr.
13.400.000 kr.
67.6 m²
198.225 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone