Lýsing
Miklaborg kynnir: Virkilega falleg og björt 91,8 m2 4ra herberbergja íbúð á efstu hæð á vinsælum stað við Sólheima 38 í Reykjavík. Aukin lofthæð er í hluta íbúðar og fallegt útsýni.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingimundur Ingimundarsson lögg. fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Forstofuhol með fataskáp, gluggi til austurs
Þvottahús/geymsla með hillum og lökkuðu gólfi. Gluggi til norðurs.
Eldhús með ljósri innréttingu og gluggum til vesturs og norðurs.
Borðstofa björt og rúmgóð með góðum glugga til vesturs. Aukin lofthæð.
Stofa björt og rúmgóð með stórum glugga til suðurs. Aukin lofthæð að hluta.
Barnaherbergi rúmgott með glugga til suðurs.
Hjónaherbergi bjart og rúmgott, útgengt út á svalir til suðurs. Gluggar til suðurs og austurs.
Baðherbergi snyrtilegt með upphengdum skáp, flisalagt að hluta, baðkar með sturtu. Lakkað gólf. Gluggi til norðurs.
Geymsla undir tröppum við inngang. Ekki upphituð.
Fallegt ljóst harðparket er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi og þvottahús þar sem gólf er lakkað.
Sameiginlegur inngangur með hæðinni fyrir neðan. Stigagangur virkilega fallegur og stílhreinn.
Falleg og björt íbúð með tveimur svefnherbergjum, stofu og borðstofu og þvottaherbergi innan íbúðar á efstu hæð á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík.
Göngufæri við leik- og grunnskóla ásamt allri þeirri verslun og þjónustu sem Skeifan, Glæsibær og Laugardalurinn hefur uppá að bjóða.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingimundur Ingimundarsson lögg. fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is