Lýsing
Miklaborg kynnir: Borgartún 24. Þriggja herbergja 79 fm íbúð merkt 315 er á 3. hæð. Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu með svölum sem snúa til norðurs ásamt geymslu á jarðhæð.
Sameiginlegur þakgarður á 4. 6. og 7. hæðinni. Einstök staðsetning í hjarta borgarinnar nærri helstu atvinnusvæðum og útivistarmöguleikum.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Gonnigan Daníelsdóttir aðstoðarm. fasteignasali í síma 897-1161 9300 eða gudrun@miklaborg.is
Um er að ræða 64 íbúðir, sem eru í mismunandi stærðum, 2ja herbergja til 4ra herbergja íbúðir í sjö hæða nýbyggingu við Borgartún, 105 Reykjavík.
Íbúðum er skilað fullbúnum með öllum gólfefnum; Baðherbergi og þvottahús með flísalögðum gólfum og baðherbergi eru með flísalögðum veggjum upp að lofti á a.m.k tvo vegu. Harðparket er á öðrum gólfflötum ásamt hvítum gólflistum. Í lyftuforrýmum að innan eru veggir sandspartlaðir og málaðir. Í stigahúsum verða veggir spartlaðir og málaðir. Veggir og loft í bílageymslu verða grófviðgerðir og rykbundnir með glæru efni. Gólf í geymslum, geymslugangi, hjóla- og vagnageymslu verða lökkuð. Lagnir verða sjáanlegar í loftum í geymslum. Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu.
Borgartúnið iðar af mannlífi og er steinsnar frá helstu menningarviðburðum borgarinnar.
Nánari upplýsingar veita:
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@miklaborg.is
Ingimundur Ingimundarson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Guðrún Gonnigan Daníelsdóttir aðstoðarm. fasteignasala, í síma 897-1161 eða gudrun@miklaborg.is