Lýsing
Húsið samanstendur af forstofu, salerni, gangi, tveimur svefnherbergjum, stofu / borðstofu og eldhúsi.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR
Nánari lýsing á eignar: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Baðherbergi einnig með flísum, innrétting með handlaug, sturta, gluggi. Tvö svefnherbergi og eru þau bæði með parketi á gólfi, góður fataskápur í hjónaherbergi. Bæði svefnherberginu eru með hjónarúmi. Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými og eru þessi rými með parketi á gólfi. Frá stofu er unnt að ganga út á verönd og þaðan er hægt að ganga út í heitan pott. Eldhús með snyrtilegri innréttingu. Lóðin er eins og áður sagði 5.000 fm með skógarlundum, náttúrulegum gróðri og fallegu útsýni. Rauðmöl fyrir framan húsið, stórt bílaplan.
Stutt í alla þjónustu, ca. 10 - 15 min akstur á Selfoss og margir golfvellir í 5 - 15 min radíus ásamt ýmissi annarri afþreyingu og ekki nema um 50 -60 mín akstur frá Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat