Opið hús: Klapparstígur 14, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 14. nóvember 2024 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-8813, merkt 01-0302 birt stærð 76.4 fm. ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari lýsing.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, uppþvottavél og ísskápur munu fylgja með.
Stofa er opin við eldhús, með fallegu útsýni og parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, baðkar, tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi og veggjum.
Svefnherbergi er með fataskáp og parket á gólfi, útgengi á svalir til vesturs.
Aukaherbergi er með fataskáp og útgengi á svalir til vesturs.
Sérgeymsla er í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Íbúðin er vel staðsett í miðborg Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða tölvupósti: kristin@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.