Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Granaskjól 13

107 Reykjavík

62.900.000 kr.

855.782 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2024537

Fasteignamat

55.050.000 kr.

Brunabótamat

30.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1948
svg
73,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Granaskjól 13, gullfallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð/kjallara. 
Íbúðin skiptist í forstofu, gang, tvö rúmgóð svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús/geymslu. Köld geymsla er við hlið inngangsins inn í íbúðina. Frábær fyrstu kaup í góðu og vinsælu hverfi fyrir litla fjölskyldu, örstutt frá Háskólanum og miðborginni. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs í síma 896-6020 eða á tölvupóstfanginu hallgrimur@trausti.is. 

Íbúðin er 73,5 fm samkvæmt skráningu hjá HMS.

Nánari lýsing eignar: 

Sérinngangur er inn í íbúðina. 
Komið er inn á anddyri og þaðan inn á harðparketlagða stofu og borðsofu.
Á hægri hönd frá anddyri er baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Baðherbergið er nýlega endurnýjað.
Á vinstri hönd frá anddyri er rúmgott svefnherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi. 
Inn af stofunni er eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu og harðparketi á gólfi.
Við hlið eldhússins er svefnherbergi sem er ágætlega rúmgott og með harðparketi á gólfi. 
Þvottahús og geymsla er innan íbúðarinnar. 
Köld útigeymsla er við hliðina á innganginum sem tilheyrir íbúðinni.
Sameiginleg lóð, vel gróinn og snyrtilegur garður er við húsið og hefur íbúðin sérafnotareit á henni. 

Þak hússins var yfirfarið og málað 2022 og tröppur upp á efri hæð múraðar og þéttar.  

Hér er frábær eign á ferðinni fyrir fyrstu kaupendur í grónu og vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. mar. 2022
41.300.000 kr.
46.800.000 kr.
73.5 m²
636.735 kr.
7. jún. 2018
33.800.000 kr.
32.200.000 kr.
73.5 m²
438.095 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík