Lýsing
Miklaborg kynnir: 2ja herbergja íbúð á jarðhæð við Flyðrugranda 4, 107 Reykjavík. Eldhús iog baðherbergi hafa nýlega verið endurnýjuð. Útgengi í garð mót suð-vestri. Íbúðin er skráð 71,1 fm og þar af er geymsla 5,9 m2.
Aflið upplýsinga hjá Friðrik í s. 616 1313
NÁNARI LÝSING: Komið inn í forstofu með fatahengi. Gengið áfram inn í alrými sem samanstendur af opnu eldhúsi með góðri eyju og stofu. Eldhúsinnrétting sem er stór og er með efri og neðri skápum og var endurnýjuð 2017. Límtré er á borðum innréttingar og eyju. Stofan er björt með nýlegri gluggakistu og útgengi á hellulagðan reit. Hjónaherbergi er með glugga út í garð og lausum skáp. Fyrir framan hjónaherbergi er hol. Baðherbergi var endurnýjað 2014 og er flísalagt með upphengdu salerni og sturtu. Geymslan er á gangi við hlið íbúðar og sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Á efstu hæð er sameiginlegt rými fyrir salerni, sturtu og sauna.
Steypu- og gluggaviðgerðir hafa farið fram á húsinu ásamt því að húsið var málað.. Eftirsótt staðsetning í Vesturbænum, stutt í leikskóla, grunnskóla og íþróttasvæði KR. Göngufæri við miðbæinn og Háskóla Íslands.
Allar nánari upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lögg. fasteignasalio í s. 616 1313 eða fridrik@miklaborg.is