Lýsing
OPIÐ HÚS VERÐUR Í HVERFISGÖTU 84, ÍBÚÐ 201, ÞRIÐJUDAGINN 7. JANÚAR KL. 12:30-13:00.
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HVERFISGÖTU 84.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt verðmat á þinni eign.
Húsaskjól og Pétur Ísfeld, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu: Afar glæsileg 75,4 fm 2ja herbergja íbúð annarri hæð á Hverfisgötu 84, í 101 Reykjavík með fasteignanúmer 2005215 með sérinngangi. Birt stærð eignar er skráð 75,4 fm, þar af íbúðarrými 58,3 fm og geymsla 15,4 fm. Íbúðin skiptist í alrými með stofu, borðstofu og eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, auk svala sem eru 2,7 fm út frá svefnherbergi og snúa í suðvestur. Hæðin er með sérinngangi, sunnan megin við húsið, í nýuppgerðu húsi á horni Hverfisgötu og Vitastígs. Hús og innviðir eru nánast allir nýir, allt gert upp þannig að gamli stíllinn fái að halda sér sem mest. Einstaklega falleg fullbúin íbúð í upp gerðu húsi.
Myndbönd
Stutt yfirlitsmyndband af eigninni
Nánari lýsing
Anddyri: Gengið inn um sérinngang, sunnan megin í húsinu, í anddyri er pláss er fyrir skóhillu á hægri hönd með spegli fyrir ofan og beint á móti er fatahengi. Dökkgrár mynstraður dúkur er á gólfinu.
Alrými: er með stofu, borðstofu og eldhúsi. Ljóst parket er á gólfi og gluggar eru eftir endilöngu rýminu út á Hverfisgötu.
Stofa og borðstofa: eru eftir hlið sem snýr út að Hverfisgötu og þar er pláss fyrir borðstofuborð og sófagrúppu. Rýmið er bjart og fallegt þar sem 4 gluggar eru á rýminu og ljóst parket er á gólfi. Þetta er rými sem býður upp á mikla möguleika.
Eldhús: er með hvítri innréttingu eftir öllum bakvegg í alrýminu með bæði efri- og neðri skápum og stein borðplötu. Það er því mikið skápapláss, gott skipulag og gott vinnupláss. Í eldhúsi er helluborði með viftu yfir, uppþvottavél, vaskur, ofn og pláss fyrir ísskáp.
Geymsla í íbúð: er staðsett undir stiga upp á 3 hæð en einnig er stór tvöfaldur skápur í alrými á móti anddyri. Parket er á gólfi.
Svefnherbergi: er bjart og rúmgott með gólfsíðum frönskum glugga þar sem hægt er að ganga út á suðursvalir. Stór fataskápur er á bakvegg og á gólfi er ljóst parket. Pláss er fyrir tvíbreytt rúm, náttborð og snyrti borði, skrifborði eða barnarúmi.
Baðherbergi: er með dökkgráum mynstruðum dúk á gólfinu og flísaplötur á veggjum ásamt mjög stórum glugga með opnan legu fagi. Góð innrétting, með skápaplássi er undir vaski, speglaskápur er yfir vaskinum. Við hliðina á vaskinum eru tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er upp hengt klósett, sturta og handklæðaofn.
Svalir: snúa í suður og eru með viðar handrið og viðar gólfi.
Geymsla í kjallara: er rúmgóð og gengið beint inn að utan.
Hér er hægt að nálgast teikningar af eign
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði