Lýsing
Eignin er 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð og hefur aðgengi að glæsilegum sameiginlegum svölum sem snúa til suðurs.
Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í opið rými sem er aðskilið með fataskáp. Björt og góð stofa er í miðrými og er þar aðgengi að eldhúsi og svefnherbergi. Svefnherbergi með góðum fataskápum og með glugga sem snúa út að Týsgötu. Baðherbergi með ljósri innréttingu og sturtuklefa. Góður gluggi er á baðherberginu. Eldhús með góðum skápum og er tengi fyrir þvottavél í innréttingu. Góður gluggi sem snýr út í garð og með útsýni að Hallgrímskirkju.
Á jarðhæð er sameignilegur garður sem er afgirtur með steyptum vegg.
Í kjallara er sameign, sorpgeymsla, lagnarými og rými þar sem geymslan mun vera.
Á húsfundi 11.10.2024 var rætt um að sameiginlegur vilji eignada að Týsgötu 1 að bæta við 5,1 fm(samkvæmt teikningu) geymslu fyrir íbúð 101 og 302 í gamla þvottahúsinu og verður það gert formlega með viðauka í eignaskiptasamnig. Þegar geymslan hefur bæst við íbúðina mun fm tala íbúðarinnar hækka um 5,1 fm. samanlagt verður íbúðin samkvæmt þessu skráð
Staðsetning er virkilega góð en íbúðin er í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla þjónustu og mannlíf.
Vakin er athygli á að hægt er að sækja um bílastæðakort hjá Reykjavíkurborg og er árgjald 16.800-33.600 kr eftir tegund bíls og gildir fyrir lagningu í stæða innan ákveðins svæðis frá íbúðinni.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður