Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Kuggavogur 15

104 Reykjavík

104.900.000 kr.

822.100 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2502937

Fasteignamat

94.400.000 kr.

Brunabótamat

81.246.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
127,6 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali kynna glæsilega fjögurra til fimm herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) ásamt stæði í bílageymslu í nýlegu lyftuhúsi við Kuggavog 15 í Reykjavík. Aðeins þrjár íbúðir eru á hæðinni. Mikil lofthæð og fallegt útsýni. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur með gluggum í þrjár áttir. Eldhús og stofur eru í opnu, björtu rými með útgengi á suðaustursvalir. Hjónasvíta með sér baðherbergi. Sameign er mjög snyrtileg. Falleg eign í nýlegu hverfi Vogabyggðar þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir. Fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.

Íbúð 301 (efsta hæð):
Forstofa: Rúmgóð, parket á gólfi, stór fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, hvít innrétting með góðu skápaplássi og eldunareyju. Eldhús og stofa eru í opnu rými.
Tvær samliggjandi stofur í opnu og björtu rými, parket á gólfi, útgengi á 8,7 fm suðaustursvalir. Fallegt útsýni yfir í Elliðaárdal og til fjalla. 
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. Inn af hjónaherbergi er sérbaðherbergi. 
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísar á gólfi og stærstum hluta veggja, hvít innrétting með handlaug, sturta með sturtugleri, handlæðaofn, upphengt salerni, opnanlegur gluggi, gólfhiti.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi, fataskápur. 
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og stærstum huta veggja, hvít innrétting, sturta með sturtugleri, handklæðaofn, upphengt salerni, opnanlegur gluggi, gólfhiti. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi, skápar fyrir ofan vélar.

Sérgeymsla (12,5 fm), merkt 0019 í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Sérstæði í bílageymslu fylgir eigninni, merkt B31.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. jún. 2019
29.850.000 kr.
66.500.000 kr.
127.6 m²
521.160 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone