Lýsing
Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn á undanförnum árum. Húsið stendur við fallega götu á rólegum stað í gamla Vesturbænum, í göngufæri frá miðbænum og menningunni.
Íbúðin er skráð 96,7 fm hjá HMS.
Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar í opnu rými með eldhúsi, furuborð á gólfi.
Eldhúsið er með nýlega fallega innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og furuborð á gólfi.
Barnaherbergi er rúmgott með furuborðum á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum, furuborð á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri ljósri innréttingu, náttúruflísum á gólfi og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahúsið er inn af baðherberginu og þaðan er útigengt í bakgarðinn. Þvottahúsið er rúmgott með innréttingu og vaskborði, náttúruflísar á gólfi og gólfhiti.
Lítil geymsla er inn af þvottahúsi með hillum, náttúruflísar á gólfi, gólfhiti.
Fallegur gróinn garður, steinsteyptur veggur um garðinn, og sólrík verönd við inngang.
Þessi eign er í sérflokki, á afar rólegum stað í göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur. Allar nánari upplýsingar veitir veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.