Lýsing
** Bókið skoðun hjá sigridur.lind@heimili.is eða í síma 8994703 **
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn í forstofu/hol um snyrtilega sameign, parketi á gólfi og góður fataskápur. Á vinstri hönd frá forstofu er stærra svefnherbergið sem er með parketi á gólfi, góðum fataskápum og glugga til suðurs.
Borðstofa og stofa eru samliggjandi þvert í gegnum íbúðina (frá norðri til suðurs) og eru með parketi á gólfi. Útgengi á góðar yfirbyggðar svalir til suðurs úr stofunni. Í borðstofu eru góðir gluggar til norðurs þar sem njóta má njóta stórkostlegs útsýnis m.a yfir sundin blá og að Esju.
Eldhús er opið við borðstofu og er með ágætri eldri innréttingu, opnanlegum glugga og parketi á gólfi. Inn af eldhúsi er minna svefnherbergið með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á veggjum og dúk á gólfi, góð sturta og snyrtileg innrétting. Stæði fyrir þvottavél á baðherbergi. Eigninni fylgir sér 5 fm geymsla í sameign.
Góð aðkoma er að húsinu Lindargötumegin og eru bílastæði þar fyrir íbúa sem og rafhleðslustæði. Íbúðina má eingöngu selja félagsmönnum í Félagi eldri borgara 60 ára og eldri.
Í sameign er góður samkomusalur sem íbúar hússins hafa afnot af. Í húsinu er starfandi húsvörður og dyrasími með myndavél í íbúðum.
Í húsi við hliðina Lindargötu 59, rekur Reykjavíkurborg Vitatorg, samfélagshús fyrir eldri borgara. Þar er ýmiskonar þjónusta m.a mötuneyti og félagsstarf sem íbúar í Skúlagötu 20 hafa aðgang að, sjá nánar: https://reykjavik.is/stadir/lindargata-59-samfelagshus
Allar nánari upplýsingar um eignina gefur Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is eða í síma 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.