Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
fjölbýlishús

Fossvegur 2

800 Selfoss

54.900.000 kr.

577.895 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2273423

Fasteignamat

47.800.000 kr.

Brunabótamat

48.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
95 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna. Virkilega bjarta og fallega 3ja herbergja 95 fm íbúð á jarðhæð í lyftublokk við Fossveg 2 á Selfossi.  Húsið er byggt árið 2004, viðhaldslétt og sérinngangur er í íbúðina. Íbúðin er staðsett á gafli hússins og því með gluggum á þremur hliðum íbúðarinnar. Vel umgengin og snyrtileg íbúð. Sólpallur með skjólgirðingu.

Nánari lýsing: Flísalögð forstofa með góðum fataskáp. Eldhús er opið inn í stofu með góðri innréttingu, keramikhelluborði og ofn í vinnuhæð. Stofa er björt og útgengt á rúmgóðan sólpall með skjólgirðingu. Tvö fín svefnherbergi, stór fataskápur í hjónaherbergi og annar minni í barnaherbergi.  Baðherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu og flísalagðri sturtu. Á baðherbergi er innrétting sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er góð geymsla innan íbúðar með stórum fataskáp og hillum. Sameign er snyrtileg og þar er hjóla- og vagnageymsla. 

Rúmgóð og björt íbúð staðsett á eftirsóttum stað á Selfossi í snyrtilegu fjölbýli.    
 
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                              
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. maí. 2016
19.700.000 kr.
23.700.000 kr.
95 m²
249.474 kr.
2. jan. 2015
19.450.000 kr.
20.100.000 kr.
95 m²
211.579 kr.
19. nóv. 2012
17.200.000 kr.
17.000.000 kr.
95 m²
178.947 kr.
19. jún. 2007
15.690.000 kr.
18.900.000 kr.
95 m²
198.947 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi