Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
svg

1226

svg

904  Skoðendur

svg

Skráð  17. des. 2024

fjölbýlishús

Skógarás 2

110 Reykjavík

65.900.000 kr.

753.143 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2046636

Fasteignamat

59.350.000 kr.

Brunabótamat

39.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1986
svg
87,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 **

FASTMOS kynnir: Falleg og vel skipulögð 87,5 m2, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli í Seláshverfi í Árbænum. Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, hjónaherbergi, barnaherbergi og þvottahús/geymslu. Svalir til vesturs með fallegu útsýni. Íbúðin er vel staðsett í rólegu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Stutt er í Árbæjarlaug, íþróttasvæði Fylkis og útivistarsvæði í Elliðaárdal og við Rauðavatn.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent ** 


Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og fatahengi.
Gangur er með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með parket á gólfi. Útgengt er á svalir til vesturs með fallegu útsýni. Hljóðeinangrandi loftapanill er í miðrými íbúðarinnar, stofu og gangi.
Eldhús er með korkflísum á gólfi og hvítri U-laga innréttingu frá HTH. Í innréttingu er gert ráð ísskáp og uppþvottavél. 
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parket á gólfi og góðum skápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkari með sturtuaðstöðu, salerni og handlaug. Við hlið baðkars er mögulegt að setja upp sturtuklefa.
Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsi með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð hússins.

Samkvæmt seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir hafa átt sér stað á undaförnum árum:
Innandyra: 2021: Nýtt parket á stofu, gang og svefnherbergi. 2016: Nýtt eldhús, innrétting frá HTH. 2015: Nýtt gler sett í svefnherbergin. Einnig lagt nýtt gólfefni í eldhús.
Utandyra: 2021: Stigagangur teppalagður og málaður. 2019: Gluggalistar utan á húsinu endurnýjaðir og gler þar sem við átti. Nýtt dyrasímakerfi lagt í húsið. Ofnar í sameign yfirfarnir. 2018: Þak (járn, þaktúður og pappi) endurnýjað og settir nýir þakgluggar. 2017: Stétt fyrir framan inngang hellulögð með hitalögn. 2015: Þakkantur málaður og viður endurnýjaður þar sem þurfti. Gluggalistar og gler endurnýjað austan megin.

Verð kr. 65.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. júl. 2021
38.700.000 kr.
48.500.000 kr.
87.5 m²
554.286 kr.
4. nóv. 2015
21.650.000 kr.
25.900.000 kr.
87.5 m²
296.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ