Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Elliðabraut 16

110 Reykjavík

58.400.000 kr.

1.037.300 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2507854

Fasteignamat

46.900.000 kr.

Brunabótamat

42.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
56,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega nýlega 2.herbergja 56,3 m2 íbúð á 2.hæð í lyftublokk við Elliðabraut 16 með nýlegri svalalokun frá 2023. Fallegt útsýni er frá eigninni. Samkvæmt FMR er íbúðarfermetrarnir 49,3 ásamt 7 m2 geymslu. Tvö hleðslustæði á lóð.

Húsið er byggt af Mótx árið 2020, fjöldi íbúða í húsinu eru 20. Um er að ræða vandaða og bjarta íbúð þar sem mikið er lagt upp úr hljóðvist og loftgæði. Svalalokun og fallegt útsýni yfir Elliðavatn. Íbúðin skiptist í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Norðlingaholt er í nágrenni við Rauðhóla, Rauðavatn, Heiðmörk og Elliðavatn en þar eru margar góðar gönguleiðir og stutt í náttúruna. Sameign er rúmgóð og björt. Hvítir skápar upp í loft frá Axis. Innfelld lýsing frá Rafkaup. Nýlega opnaði Bónus verslun í göngufæri við eignina. Einnig er Norðlingaskóli og leikskólinn Rauðhóll í göngufæri. 


​​​​​​Nánari lýsing eignar
Forstofa
með harðparket á gólfi, þrefaldur fataskápur.
Hjónaherbergi með harðparket á gólfi, þrefaldur fataskápur. 
Baðherbergi með fallegri baðinnrétting með efri og neðri skáp,  hreinlætistæki og handklæðaofn frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Gólfið er flísalagt og veggir að hluta upp í loft. Walk in sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurkara.
Eldhús/borðstofa með harðparket á gólfi, innrétting með vaski frá Grohe blöndunartækum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru að gerðinni AEG frá Ormsson. Innbyggð uppþvottavél og gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa með harðparketi  á gólfi gengið út um rennihurð út á rúmgóðar  4 m2 svalir ( ekki inni í birtum m2 )  gólfsíðir gluggar að hluta. Svalalokun. 
Geymsla er í kjallara er 7 m2.

Annað: 
Í kjallara eru einkageymslur fyrir hverja íbúð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sérstakt loftræstikerfi er í íbúðinni. Kerfið hefur loftskipti með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu og soga lofti út úr baði/þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki er þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar. Öryggiskerfi er í sameign og í bílakjallara. Djúpruslagámar eru í jaðri lóðar á tveimur stöðum með flokkun.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. sep. 2020
13.400.000 kr.
35.900.000 kr.
56.3 m²
637.655 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone