Opið hús: Dvergabakki 8, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 02 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 9. janúar 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Snyrtilega fjögurra herbergja 89,6 m2 íbúð á 2. hæð við Dvergabakka 8 í Reykjavík.
Íbúðin er vel skipulögð, að mestu upprunaleg með þremur góðum svefnherbergjum. Rúmgóðar svalir tilheyra eigninni, bæði norðan og sunnan megin og er útsýni norðan megin. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús með sér tengi fyrir þvottavél. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Endurbætur hafa verið gerðar á húsinu síðustu ár: Húsið múrviðgert og málað, skipt um glugga á áverðurshliðum, svalir flotaðar og svalaframhliðar endurnýjaðar. Í íbúðinni hefur verið skipt um glugga og svalahurð á suðurhlið.
Eignin skiptist í hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og geymslu.
Birtar stærðir skv. HMS: Íbúð er 84,4 m2 merkt 0202 og geymsla er 5,2 m2 merkt 0007, samtals 89,6 m2 að stærð.
Sækja söluyfirlit strax
Nánari lýsing
Hol er með fataskáp, flísar á gólfi.
Svefnherbergi I er með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III (hjónaherbergi er með fataskáp, parket á gólfi. Útgengi á svalir í norður.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með salerni, handlaug með litilli innréttingu, speglaskáp og baðkar með sturtu yfir.
Stofa er með parketi á gólfi. Útgengi á svalir í suður.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu, eldavél með helluborði, gufugleypi yfir og ísskáp, flísar á milli skápa, dúkur á gólfi. Borðkrókur við glugga.
Geymsla í kjallara er með áföstum hillum.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Sameignlegt þvottahús í kjallara með sér tengi fyrir þvottavél.
Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / monika@landmark.is / 823-2800
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / julius@landmark.is / 823-2600
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat