Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Styrmir Bjartur Karlsson
Vista
svg

4973

svg

3917  Skoðendur

svg

Skráð  17. jan. 2025

fjölbýlishús

Fellsmúli 22

108 Reykjavík

79.900.000 kr.

660.331 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2015751

Fasteignamat

72.600.000 kr.

Brunabótamat

53.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
121 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu vel skipulagða 4.herbergja 121,0 fm endaíbúð á 3.hæð í snyrtilegu og mjög vinsælu fjölbýlishúsi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. 
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö baðherbergi, þvottaherbergi innan íbúðar, þrjú svefnherbergi, með möguleika á fjórða svefnherberginu í stofu og sérgeymslu. Íbúð er mjög björt með gluggum á fjóra vegu og er óhindrað útsýni til norð-austurs úr stofu og skjólgóðar suður-svalir út frá stofu. Rúmgóð og skemmtileg eign sem hefur fjölmarga kosti með sér. Stutt er í alla helstu þjónustu m.a. leikskóla, skóla, útivista/íþróttarsvæði og allar stofnbrautir. Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Styrmir B. Karlsson löggiltan fasteignasala, S:899 9090, styrmir@croisette.is eða Evu Margréti Ásmundsdóttur, löggiltan fasteignasala, í síma 822-8196 eða á netfangið eva@croisette.is


SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT
SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ EIGNINA Í 3D

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgott fatahengi er í forstofu. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Er opið og bjart rými með gluggum á tvo vegu, hluti af vegg í stofu hefur verið flísalagður með gráum flísum, óhindrað útsýni er úr stofu til norð-austurs og útgegni er á ca. 9 fm skjólgóðar suður svalir úr stofu, mögulegt er að bæta við fjórða herbergi í hluta af stofu. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Er opið inní stofu að hluta og er með snyrtilegri hvítri innréttingu með góðu skápaplássi, flísar á vegg á milli efri og neðri skápa, helluborð er í innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur, gluggar eru á tvo vegu í eldhúsi. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með innbyggðum fataskápum. Harðparket á gólfi.
Tvö svefnherbergi: Góð herbergi og björt. Léttur veggur á milli, þannig það er auðvelt að breyta þeim í eitt rúmgott herbergi. Harðparket á gólfum.
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuhengi, vegghengt salerni með flísalögðum vatnskassa, snyrtileg innrétting í kringum vask með skúffum, glerskápur með ljósum ofan við vask, handklæðaofn. 
Gestabaðherbergi: er flísalagt með vegghengdu salerni, snyrtileg innrétting í kringum vask með skúffum, handklæðaofn.  Innaf gestabaðherbergi er búið að útbúa þvottaherbergi sem er með hillum og aðstöðu fyrir þvottavél og þurkara. Flísar á gólfi.

Sérgeymsla í kjallara ca. 4.7 fm. Hjóla- og vagnageymsla í sameign, þar sem er útgengi í bakgarð.
Sameiginlegt þvottahús.
Útleiguherbergi á jarðhæð í eigu húsfélagsins.


Nánari upplýsingar veita: 
Styrmir B. Karlsson Lfs S:899 9090, styrmir@croistte.is
Eva Margrét Ásmundsdóttir Lfs í S: 822-8196 eða eva@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
 

img
Styrmir Bjartur Karlsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Croisette Iceland ehf
Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
img

Styrmir Bjartur Karlsson

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. nóv. 2020
47.150.000 kr.
51.000.000 kr.
121 m²
421.488 kr.
2. jún. 2015
29.000.000 kr.
31.500.000 kr.
121 m²
260.331 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík

Styrmir Bjartur Karlsson

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík