Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Hverfisgata 100

101 Reykjavík

79.900.000 kr.

1.163.028 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532853

Fasteignamat

55.200.000 kr.

Brunabótamat

49.890.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1930
svg
68,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Laust strax - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

FASTMOS kynnir: Glæsileg, ný, fullbúin 68,7 m2, 3ja herbergja endaíbúð á 4. hæð (efstu hæð) í lyftuhúsi við Hverfisgötu 100 í miðbæ Reykjavíkur. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning með gólfefnum, vönduðum innréttingum og innbyggðum eldhústækjum.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu. Sérgeymsla fylgir eigninni. Svalir í suðurátt. Eignin er skráð 68,7 m2, þar af íbúð 63,5 m2 og geymsla 5,2 m2.  Gólfflötur íbúðarinnar er þó nokkuð stærri þar sem hluti hennar er undir súð.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofa er björt með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á sérafnotaflöt í suðurátt.
Eldhús er í björtu rými með gluggum á tvo vegu. Falleg innrétting og harðparket á gólfi. Í innréttingu er innbyggður kæliskápur, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og helluborð.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með fharðparketi á gólfi. Skrifstofa á teikningu.
Baðherbergi með flísum á gólfi, innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og "walk-in" sturtu. Gert er ráð fyrir þvottavél í innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.
Sérgeymsla er á lóð 5,2 m2.

Eldhúsinnrétting, baðinnrétting og fataskápar eru frá Voke3 (söluaðili er Voke-III á Íslandi ehf). Eldhústæki frá Electrolux, þ.e. ofn, helluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur. Harðparket er á gólfum nema á baðherbergjum/þvottaherbergjum en þar eru flísar.
Frágangur utanhúss: Sameign, stigagangur og lyftuhús ásamt útveggjum og burðarveggjum fyrstu hæðar er úr járnbentri steinsteypu. Ofan á steypta plötu yfir fyrstu hæð leggjast timbureiningar fyrir 2., 3. og 4. hæð. Fyrsta hæð er einangruð að innan en á hæðum 2-4 eru einangraðar timbureiningar klæddar viðhaldsléttri álklæðningu að utan. Timbur/ál gluggar með hljóðeinangrandi gleri sem snýr að Hverfisgötu. Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð. 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af brunabótamati).

Hluti verksins er endurgerð eldri húsa þar sem efri hæðir eru teknar niður en jarðhæðin endurgerð og nýtt áfram. Ofan á steypta jarðhæð koma 3 hæðir og eru þær úr timbureiningum. Stigahús og lyftustokkur var steypt upp allar hæðir áður en timbureiningar voru reistar og virkar sem burðarvirkiskjarni sem styrkir bygginguna.

Verð kr. 79.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone