Lýsing
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynnir vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á sjöundu hæð með frábæru útsýni í lyftuhúsi við Þverbrekku 2, kópavogi. Íbúðin er skráð 44,9 fm og geymsla 5 fm.
Nánari lýsing.
Forstofa: Komið er inn í parketlagt alrými eignarinnar, fataskápur í forstofu.
Eldhús: Í opnu rými með stofu. Hvít innrétting, eldurnareyja með skápum og aðstöðu til að borða við.
Stofa: Björt með útgengi út á vestursvalir með frábæru útsýni.
Baðherbergi: Gólf er flísalagt og veggir að hluta. Walk in sturtuaðstaða, innrétting undir handlaug, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi: Er rúmgott með góðum fataskápum. Parket er á gólfi.
Svalir: góðar svalir með frábæru útsýni.
Geymsla: Í sameign. 5 fm.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign
Framkvæmdir
Búið er að setja nýtt parket á alrými og svefrnherbergið.
Nýr fataskápur inní svefnherbergi.
Skipt hefur verið um alla ofna í íbúðinni.
Vel skipulögð íbúð miðsvæðis í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
FyrirvararÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.