Upplýsingar
Byggt 2024
59,3 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Opið hús: 6. febrúar 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús fimmtudaginn 6 febrúar milli kl. 17:00 - 17:30. Sýnum allar óseldar íbúðir. Aðkoma frá Suðurlandsbraut.
Lýsing
Dalsmúli 1,íbúð 06-01 er 2 herbergja, 59.3 fm íbúð á 6 hæð í nýju glæsilegu lyftuhúsi. Íbúðirnar eru lausar til afhendingar við kaupsamning.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna nýjar eignir við Dalsmúla 1-3 í glæsilegu lyftuhúsi á Orkureitnum, sannkölluðum sælureit við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.
*Heimasíða verkefnisins*
Dalsmúli 1, íbúð 06-01 er 59.3 fm 2 herb.íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn.
Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 59.3 fm, með geymslu í sameign. Innréttingaþema í íbúðinni er: Rut 2
Nánar um orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Rut Kára stýrir fágaðri hönnun innréttinga íbúða ásamt því að leggja línuna fyrir öll sameiginleg rými svo úr verður heildarmynd byggingar sem er engu lík. Rut Kára hefur lag á því að skapa heim sem við viljum búa í.
Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“.
Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook