Lýsing
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.
Vefsíða verkefnisins við Pollinn á Akureyri
Íbúðin er samtals 103fm., þar af er geymsla 11,3fm.
Íbúðin:
Komið er inn í forstofu með skáp, eldhús á vinstri hönd.
Opið eldhús, eldhúseyja með kvarts stein og span helluborði. Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum. Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn í vinnuhæð, innfelldur vaskur. Allar skúffur og skápar með ljúflokum. Innfelld lýsing frá Lumex.
Fyrir framan eldhúseyjuna er rúmgóð stofa/borðstofa. Útgengt út á suður-svalir úr stofunni til suðurs.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta með glerskili. Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu. Upphengt salerni.
Þvottahús er flísalagt skápur fyrir þvottavél og þurrkara, kvarts steinn á borðplötu.
Hjónaherbergi er rúmgott 13,5fm. með góðum skáp. Útgengt á svalir til norðurs með útsýni út á pollinn.
Barnaherbergi með skáp.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.
Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri. Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.
Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu.
Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Athugið:
- Á byggingareitnum er verið að reisa nýtt hótel, Skáld hótel, Curio Collection by Hilton sem á að opna 2026.
- Innangengt verður um bílageymslu beint inn á hótelið, sem einungis hótelgestir og íbúðareigendur nota.
- Sú nýbreytni mun verða að íbúarnir á reitnum við Austurbrú 10-18 munu geta nýtt sér þjónustu Skáld Hótels á sérkjörum, sjá hér.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Sölumenn Helgafells fasteignasölu
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.