Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsileg svansvottuð fjölbýlishús við Hringhamar 31-33 með 2ja til 4ra herbergja íbúðum á góðum stað í hinu nýja Hamraneshverfi í Hafnarfirði. Svansvottun gerir m.a. auknar kröfur um birtuskilyrði, loftræstingu og hljóðvist.
- Sérmerkt stæði í bílakjallara fylgir flestum íbúðum. Möguleiki á rafbílahleðslu er við hvert stæði.
- Vandaðar innréttingar frá Axis og tæki frá Ormsson. Allar innréttingar og skápar ná upp í loft.
- Sérstakt loftræstikerfi í öllum íbúðum.
- Íbúðir afhendast fullbúnar en án gólfefna.
- Tilbúið til afhendingar.
Bókaðu skoðun - Sýnum samdægurs
Íbúð 402 er vel skipulögð 2ja herbergja 54,2 fm íbúð á 4. hæð svalir í suður.
Nánari lýsing:
Eignin skiptist í anddyri með fataskáp. Inn af anddyri er á aðra hönd rúmgott svefnherbergi með fataskáp og baðherbergi með sturtu og vandaðri innréttingu. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi. Eldhús er í opnu alrými sem samanstendur af borðstofu og stofu með útgengi á svalir í suður. Sjá nánar á heimasíðu verkefnis hringhamar.is
Hamraneshverfi er vel staðsett hverfi í mikilli uppbyggingu með skóla, leiksskóla og falleg útivistarsvæði í næsta nágreni.
Byggingaraðili er MótX ehf sem er traustur verktaki og hefur starfað óslitið frá stofnun árið 2005. MótX hefur hlotið viðurkenningar, bæði fyrir hönnun bygginga og frágang lóða á nýbyggingarsvæðum.
Nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggitlur fasteignasali í síma 695-2634 eða stefan@miklaborg.is
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is