Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Samkvæmt HMS er eignin skráð 101,8 fm og þar af er geymsla skráð 8,4 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flotuðu gólfi og góðum yfirhafnaskáp.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á suð-vestur svalir með fallegu útsýni yfir Reykjanesið.
Eldhús með nýlega innréttingu, flísar milli skápa, bakaraofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og góðan borðkrók. Flotað gólf sem teygir sig að stofunni.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með góða innréttingu, baðkar með sturtu, flísar á gólfi og vegg að hluta og góður gluggi.
Þvottahús er innan íbúðar með dúk á gólfi, skolvask og gott geymslurými og hillur.
Sérgeymsla íbúðar í sameign á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign á jarðhæð.
Afskaplega góð staðsetning og göngufæri í nokkra leikskóla, grunnskóla og golfvöll og stutt í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.