Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jósep Grímsson
Rúnar Örn Rafnsson
Vista
svg

280

svg

239  Skoðendur

svg

Skráð  28. feb. 2025

fjölbýlishús

Laugarnesvegur 78

105 Reykjavík

69.900.000 kr.

991.489 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2016546

Fasteignamat

55.750.000 kr.

Brunabótamat

32.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
70,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 11. mars 2025 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna fallega íbúð á tveimur hæðum á Laugarnesvegi 78

OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 11. MARS MILLI 17:00 OG 17:30 - VERIÐ VELKOMIN!

Góð og björt fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum í fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað Reykjavík.
Eignin er á þriðju hæð og skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, herbergi, baðherbergi, risherbergi, auk sérgeymslu í kjallara.
Eignin er skráð skv. þjóðskrá 70,5 m², en efri hæðin er með lægri lofthæð undir risi og er því ekki í skráðri fermetratölu.
 
Nánari lýsing:
Forstofa / hol er ágætt rými með góðum nýjum skáp, og á gólfi eru gólffjalir.
Stofa / borðstofa / eldhús eru samliggjandi í stóru björtu rými með gólffjölum á gólfi. Gengið er út á svalir úr stofunni.
Innrétting í eldhúsi er ný, viðarlitir skápar og ljós borðplata. Ofn, helluborð og innbyggð uppþvottavél eru nýleg.
Baðherbergi er með walk-in sturtu, innréttingu, upphengdu salerni. Gólf og veggir er meðhöndlað með steinefnaspasli.
Herbergi 1 er á hæðinni, gólffjalir á gólfi. Úr þessu herbergi er einnig gengið út á svalir.
Hringstigi er upp á efri hæðina sem er í risi hússins.
Í dag er efri hæðinni skipt upp í eitt opið rými (sjónvarpsrými) og eitt lokað herbergi, en auðvelt er að stúka af hluta opna rýmisins og þá væru 2 lokuð herbergi uppi.
Geymsla íbúðarinnar er stór og góð í kjallara hússins. Skráð 11,1 m². Sameiginlegt þvottahús er einnig í kjallara.

Ofnar eru nýlegir og lagnir tengdar þeim hafa verið endurnýjaðar. Íbúðin er að hluta kalkmáluð og á baðherbergi er Stucco steinefnasparsl á gólfi og veggjum.
Gólffjalir voru nýlega pússaðar og vaxbornar með línolíu vaxi.
Að sögn eigenda var húsið mikið endurnýjað að utan nýlega, múrviðgerðir, gluggaskipti þar sem þurfti, og ný steining (2024)

Mikið endurnýjuð og falleg íbúð á þessum frábæra stað í 105 Reykjavík. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir ásamt allri almennri þjónustu og afþreyingu.


Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
runar@fastgraf.is

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. ágú. 2021
38.050.000 kr.
56.000.000 kr.
70.5 m²
794.326 kr.
1. okt. 2014
17.600.000 kr.
25.800.000 kr.
70.5 m²
365.957 kr.
28. sep. 2012
15.100.000 kr.
21.900.000 kr.
70.5 m²
310.638 kr.
31. ágú. 2007
13.995.000 kr.
20.000.000 kr.
70.5 m²
283.688 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone