Lýsing
Frábærlega vel staðsett og vel skipulagt einbýlishús með innangengnum bílskúr á jaðarlóð við Elliðadalinn.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 261,2fm. og þar af er bílskúr 36,4, garðskáli 31,5fm. og íbúðarherbergi í kjallara 28,6fm.
Forstofa með fatahengi og flísar á gólfi.
Gestasalerni flísalagt í hólf og gólf.
Forstofuherbergi rúmgott með parketi á gólfi.
Þvottahús mjög rúmgott með góðri innréttingu, vask og er útgengt út í garð. Úr þvottahúsinu er innangengt inn í geymslu og bílskúr.
Bílskúr er rúmgóður með parketi á gólfi. Hellulagt bílalan er fyrir framan bílskúrinn.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, flísum á milli skápa, góður borðkrókur og parketi á gólfi. Eldhús er samliggjandi við borðstofu og stofu. Inn af eldhúsi er búr.
Stofa og borðstofa mjög rúmgóð og björt með fallegum arinn og parketi á gólfi. Út stofunni er gengið niður í kjallararými hússins.
Garðskáli til suðurs með flísum á gólfi. Útgengt er úr garðskálanum út í garðinn.
Svefnherbergisgangur sem hægt er að loka af og parket á gólfi.
Þrjú svefnherbergi sem öll eru rúmgóð með parketi á gólfi. Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, upphengt salerni, góðri innréttingu, opnanlegur gluggi og flísalagt í hóf og gólf.
Kjallari með sérinngangi og stigi sem liggur úr stofunni niður í kjallara. Í kjallara er hægt að útbúa séríbúð.
Anddyri með físum á gólfi.
Gestasalerni með glugga og flísum á gólfi.
Herbergi rúmgott með flísum á gólfi.
Lóðin er skráð 816fm. og er mjög vel staðsett neðst við Elliðadalinn.
Húsið er mikið upprunalegt. Teikningar eru í samræmi við núgildandi skipulag.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir, löggiltur fasteignasali, á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.