Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jósep Grímsson
Rúnar Örn Rafnsson
Vista
svg

703

svg

615  Skoðendur

svg

Skráð  17. mar. 2025

fjölbýlishús

Klukkuberg 35

221 Hafnarfjörður

77.500.000 kr.

724.299 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2077106

Fasteignamat

82.050.000 kr.

Brunabótamat

61.570.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1992
svg
107 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Klukkuberg.
Falleg og björt fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum með stæði í lokaðri bílageymslu á þessum frábæra útsýnisstað í Hafnarfirði.  

Neðri hæð
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Úr forstofunni er innangengt á gestasalernið.

Komið er inn í miðrými íbúðarinnar þar sem stofan er á vinstri hönd og borðstofa og eldhús á þá hægri.
Eldhúsið er með vel með farinni innréttingu þar er mikið skápapláss og góð vinnuaðstaða. 
Borðstofan er rúmgóð og björt með stórum glugga með útsýni til norðurs í átt að Urriðavatni og Esjunni.             
Stofan er með stórum gluggum með frábæru útsýni til suðurs.
Efri hæð
Á milli hæða er breiður timburstigi. Komið er upp í hol sem tengir alla hæðina saman. Svefnherbergin eru þrjú, þau eru öll rúmgóð með miklu útsýni. Úr einu herbergjanna er útgengt út á stórar suðursvalir. Fataskápar eru í öllum herbergjum.
Baðherbergið sem hefur verið endurnýjað er virkilega rúmgott með fallegri innréttingu. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Geymsluloft er yfir hluta hæðarinnar.
Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Í sameigninni er sér geymsla sem og sameiginleg hjólageymsla.
Þetta er virkilega falleg eign á  eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu sem og náttúruna allt í kring.

Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
josep@fastgraf.is
www.fastgraf.is

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone