Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Samkvæmt fasteignayfirliti er eignin skráð 77,2 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með góðum yfirhafnaskáp og flísar á gólfi.
Hol og gangur með parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á góðar svalir.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, viftu yfir eldavél, tengi fyrir uppþvottavél, flísar milli skápa og góðan borðkrók.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi með góða innréttingu og skápa, baðkar með sturtu, handklæðaofn, flísar á gólfi og vegg að hluta og glugga.
Sérgeymsla íbúðar, sem ekki er inn í fermetratölu íbúðar, á geymslugangi í sameign í kjallara. Stærð ca. 6-7 fm.
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sitt tengi og góð þurrkaðstaða í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign á 1. hæð.
Stór sameiginlegur bílakjallari undir Hamraborginni og innangengt í húsið frá honum.
Miðsvæðis í Kópavogi og stutt í grunn-, leik- og framhaldsskóla sem og alla þjónustu. Gerðasafnið, Sundlaug Kópavogs og fleira skemmtilegt í göngufæri.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.