Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elísabet Kvaran
Karólína Íris Jónsdóttir
Kristján Borgar Samúelsson
Vista
fjölbýlishús

Valshlíð 3

102 Reykjavík

129.900.000 kr.

1.261.165 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532650

Fasteignamat

9.660.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
103 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Laus strax
svg
Svalir

Lýsing

Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 312.

Virðuleg og vönduð 3ja herbergja sérlega rúmgóð útsýnisíbúð á 3. hæð á horni Hlíðarhorns (vestur/suður). Birt stærð er 103,6 fm þar af 7,6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu.
Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2.

Nánari lýsing:
Í anddyri
eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn gang beint inn í rúmgott alrými, eldhús
með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Svefnherbergi með skáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Afþiljuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0045. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.


Afhending íbúðar: Gert er ráð fyrir fyrstu afhendingu íbúða í Valshlíð 3 í lok mars 2025.


Heimasíða verkefnis:
www.hlidarhorn.is


Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.


Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins.


Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt þ.e 0,3 % af endanlegu brunabótamati.


Önnur gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa:

  • Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
  • Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
  • Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.
  • Fyrirvarar:

    Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

    Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

    Kaupstaður fasteignasala

    Kaupstaður fasteignasala

    Borgartúni 29, 105 Reykjavík
    Kaupstaður fasteignasala

    Kaupstaður fasteignasala

    Borgartúni 29, 105 Reykjavík