Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Uglugötu 4 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 135,6 m2, þar af íbúð 105,6 og geymsla 30,0 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla er í kjallara (skráð 30,0 m2) með mikla möguleika sem hægt væri að nýta sem skrifstofu, tómstundarherbergi, rækt og fl. Rúmgóðar og skjólsælar svalir í suðurátt (um 17 m2) með fallegu útsýni yfir m.a. Úlfarsfell og Bláfjöll. Fallegar innréttingar frá Parka. Tvö sérmerkt bílastæði á bílaplani. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla, ósnortna náttúru og göngu- og hjólastíga.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er rúmgott með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtu. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eldhús er með fallegri innréttingu. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, vaskur, blástursofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa og borðstofa er í opnu rými með eldhúsi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir í suðurátt.
Sérgeymsla í kjallara er mjög rúmgóð, eða 30,0 m2. Möguleiki er á að nýta geymsluna sem skrifstofu, tómstundarherbergi, rækt og fl.
Uglugata 2-4 er tveggja hæða fjölbýlishús ásamt geymslukjallara. Húsið er mestu leiti einangrað og álklætt að utan. Eignin skiptist í tvo opna stigaganga með fjórum íbúðum í hvorum stigagangi, samtals átta íbúðir. Upphituð stétt er fyrir framan og aftan hús. Húsið er hannað með tilliti þess að sameiginlegur rekstrar-og viðhaldskostnaður sé sem minnstur. Í stað sameiginlegs rýmis fyrir hjól og vagna eru stórar sérgeymslur í kjallara. Á lóð eru stæði fyrir 16 bíla og hefur húsfélagið merkt tvö stæði fyrir hverja íbúð. Húsið er hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt (Krark) og byggt af Hörðuból ehf.
Verð kr. 89.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.