Opið hús: Fífulind 11, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 01 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 26. mars 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Heimili fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu glæsilega og rúmgóða 3ja herb. endaíbúð við Fífulind 11 í Kópavogi. Íbúðin er sérlega björt og glæsileg með svölum í suður. Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi og sér þvottahús inn af baðherbergi.
*** Bókið skoðun hér ***
Nánari lýsing:
Forstofa: Með góðum fataskáp og fallegum flísum á gólfi.
Stofa: Er í opnu rými með eldhúsi, fallegir gluggar, flísar á gólfi og út gengi út á rúmgóðar suður svalir með fallegu útsýni.
Eldhús: Opið við stofu/borðstofu, sérsmíðuð innrétting, harðplast á borðum, flísar á milli skápa og á gólfi, span helluborð, vifta og bakarofn endurnýjaður 2019.
Baðherbergi: Sérlega rúmgott, flísalagt gólf og upp á veggi, sérsmíðuð baðinnrétting, wc, baðkar og sér sturta.
Hjónaherbergið: Hjónaherbergið er bjart og fallegt, rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi: Rúmgott barnaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Þvottaherbergi: Inn af baðherbergi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og gluggi.
Geymsla: Í sameign er hjólageymsla og sérgeymsla íbúðar 5,6 fm.
Bílastæði: Næg sameiginleg bílastæði eru á lóð ásamt tveimur hleðslustaurum.
Upplýsingar frá seljanda um helstu framkvæmdir á húsi.
2024 Skipt um útidyrahurð, yfirstandandi útskipti á gluggum og hurðum sem greitt er að fullu.
2022 Hleðslustöðvar á lóð
2016 Þakjárn endurnýjað, húsið múr- og steypuviðgert, sílanbaðað og málað, gluggar málaðir og skipt um opnanleg fög. Verksýn hefur séð um allar framkvæmdir.
Hér er um að ræða sérlega rúmgóða og glæsilega íbúð í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi í næsta nágrenni við fallegar göngu- og hjólaleiðir ásamt öflugu skóla- og íþróttastarfi. Örstutt í alla þjónustu, skóla, leikskóla, matvöruverslun og Smáralind í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir, löggiltur fasteignasali, sími 898-2017 netfang as@heimili.is
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.