Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
svg

466

svg

415  Skoðendur

svg

Skráð  5. apr. 2025

fjölbýlishús

Bræðraborgarstígur 4

101 Reykjavík

64.900.000 kr.

847.258 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2000882

Fasteignamat

59.900.000 kr.

Brunabótamat

34.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1929
svg
76,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 29. apríl 2025 kl. 18:00 til 18:30

Opið hús: Bræðraborgarstígur 4, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 29. apríl 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Lýsing

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 og thora@esjafasteignasala.is kynna góða eign í einkasölu.
Um er að ræða einstaklega sjarmerandi eign með góðri lofthæð og skipulagi í hjarta vesturbæjar og miðborgar Reykjavíkur. Eignin er skráð 76,6 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þar ef íbúðin sjálf 69,6 fm. og geymsla 7 fm.
Íbúðin skiptist í forstofu/gang, baðherbergi, eldhús, tvö herbergi og stofu.
Nánari lýsing; komið er inn í forstofu á annari hæð um sameiginlega stigainngang, fataskápur er í forstofu og nett skóhirzla.
Baðherbergi er snyrtilegt með sturtu, salerni hvítri innréttingu með handlaug og sturtuklefa, gólf er málað, tengi fyrir þvottavél er á baðherberginu en einnig er sameiginlegt þvottahús á jarðhæð hússins.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu, með góð skápaplássi, fínu bekkplássi og borðkrók við glugga með fallegu útsýni til norðurs.
Stofan er björt og falleg með gluggum mót suðri. Hátt er til lofts og fallegir skrautlistar setja svip á rýmið.
Svefnherbergi eru tvö ágætlega rúmgóð og bæði með fataskápum.
Íbúðin er björt með góðri lofthæð. Á jarðhæð hússins er sameiginlegt þvottahús og sérgeymslur íbúðanna. Fallegur bakgarður.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone