Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vista
svg

137

svg

119  Skoðendur

svg

Skráð  7. apr. 2025

fjölbýlishús

Asparskógar 18 - íbúð 303

300 Akranes

106.900.000 kr.

821.676 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2519881

Fasteignamat

53.700.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
130,1 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja horníbúð á 3. hæð í glæsilegri og vandaðri nýbyggingu í rólegu hverfi á Akranesi.

EIGNIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR
** Bókið skoðun **
Sjöfn Hilmarsdóttir, sími 691-4591 / netfang sjofn@kjolfestaeignir.is
Heimir Bergmann. sími 630-9000 / netfang heimir@hb.is

Kjölfesta fasteignamiðlun ehf. hefur til sölu 2ja - 5 herbergja íbúðir við Asparskóga 18 á Akranesi. Þriðji og síðasti hluti byggingar er nú kominn í sölu og eru tilbúnar til afhendingar 16 glæsilegar eignir, stærðir frá 56,8 - 167,7 fm. 

Asparskógar 18 er virkilega vandað og vel skipulagt 40 íbúða fjöleignarhús á 2-5 hæðum. Húsið er byggt upp með forsteyptum einingum, einangrað og klætt að utan með ál- og timburklæðningu. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa, einangrað og með PVC dúk. Lyftur eru í tveimur opnum stigahúsum, bílastæði og sérgeymslur er í kjallara hússins sem fylgir völdum eignum hússins. Innan lóðar eru 32 bílastæði og þar af eru 14 hleðslustæði. Íbúðir skilast fullbúnar að innan með vönduðum innréttingum ásamt gólfefnum. Ljós eru innbyggð að hluta. 
 
Ýtið hér til að skoða og sjá nánar um eignir: Heimasíða - Asparskogar.is
Ýtið hér til að skoða skilalýsingu eigna: Skilalýsing - Asparskógar 18
Húsbyggjandi: Ferrum fasteignafélag 
Aðalhönnuður: Al-Hönnun ehf.

Íbúð 303 er 130.1 fm., þar af geymsla 7 fm. Sérinngangur er inn í eignina um stigahús eða lyftur. Merkt bílastæði í bílakjallara. Innan eignar er anddyri, stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, annað með þvottarými, hitt inn af svefnherbergi. Svalir eru 10,7 fm. og snúa í suð-austurátt.
4ra herbergja íbúð á 3. hæð með sérinngang 
* Stærð 130,1 fm., þar af 7 fm. geymsla
* 10,7 fm. svalir í suð-austurátt
* Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla
* Bílastæði B-11 í bílakjallara 

Nánari lýsing:
Forstofa: Þrefaldur fataskápur. Flísar á gólfi.
Eldhús: Vandaðar brúnar Nobilia innréttingar frá GKS innréttingar. Raftæki frá AEG, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Vifta er frá Elica. Eldhúsvaskur og blöndunartæki er svart að lit og er frá Tengi. Harðparket á gólfi.
Stofa: Útgengt út á svalir í sem snúa í suð/austur. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Tvöfaldur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Tvöfaldur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi III: Stór fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi. Baðherbergi inn af herbergi með handlaug, slaerni og sturtu. Flísar á veggjum og gólfi.  
Baðherbergi: Hvít innrétting með brúnni borðplötu og hvítri handlaug. Speglaskápur yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta og handklæðaofn. Hitastýrð blöndunartækin frá Tengi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Veggflísar og gegnheilar flísar á gólfi. 
Svalir: 10,7 fm í suð-austurátt.
Geymsla: Sérgeymsla eignar er í kjallara, stærð 7 fm. Stúkuð af með möskaveggjum frá Rými Ofnasmiðjunni ehf. Gólf er lakkað. 

Bílageymsla: er í kjallara hússins. Aðkoma bifreiða um akstursramp og aðkoma gangandi frá sitthvorum enda stigahúss og um gönguhurð við ramp. Upphituð með lágu hitastigi/frostlaus. Vélræn loftræstingu og sjálfvirkt springler kerfi. Sjálfvirkur hurðaropnari er á hurð. Ein fjarstýring fylgir hverju bílastæði. LED lýsing í lofti
Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 3325,0 fm. Innan lóðar eru 32 bílastæði, þar af eru 14 sérmerkt f. rafmagnsbíla og 3 fyrir hreyfihamlaða. Lóðin verður afhent fullbúin í lok byggingartímans. Bílastæði við götu eru malbikuð. Tengibúnaður (ídráttarrör) vegna hleðslu rafbíla er aðgengilegt við bílastæði. Milli húss og bílastæða við götu eru hellulagðar stéttar.

Annað: Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans.
Sorpgeymslur eru niðurfelldar á lóð (djúpgámar).

EIGNIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR

Nánari upplýsingar veita: 
Heimir Bergmann
Löggiltur fasteignasali & löggiltur leigumiðlari
Sími 630-9000 / heimir@hb.is

Sjöfn Hilmarsdóttir
Lögfræðingur & löggiltur fasteignasali
Sími 691-4591 / sjofn@kjolfestaeignir.is

 

img
Sjöfn Hilmarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kjölfesta fasteignamiðlun ehf
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes

Kjölfesta fasteignamiðlun ehf

Borgarbraut 61, 310 Borgarnes
phone
img

Sjöfn Hilmarsdóttir

Borgarbraut 61, 310 Borgarnes

Kjölfesta fasteignamiðlun ehf

Borgarbraut 61, 310 Borgarnes
phone

Sjöfn Hilmarsdóttir

Borgarbraut 61, 310 Borgarnes