Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

42

svg

38  Skoðendur

svg

Skráð  8. apr. 2025

fjölbýlishús

Áshamar 50

221 Hafnarfjörður

65.900.000 kr.

883.378 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2536841

Fasteignamat

25.150.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
74,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Lind Fasteignasala og Auður Magnúsdóttir kynna nýjar og glæsilegar 2–4 herbergja íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýli við Áshamar 50, 221 Hafnarfirði. Öllum íbúðum fylgir merkt stæði og geymsla í lokuðu bílastæðahúsi. Möguleiki verður á tengingu rafhleðslustöðvar við bílastæði. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél.

Svansvottuð bygging – umhverfisvæn og heilsusamleg hönnun

Áshamar 50 er hannaður og byggður samkvæmt ströngum kröfum Svansins – Norrænu umhverfisvottunarinnar. Slík vottun tryggir að bæði byggingarefni og framkvæmdaferli stuðli að bættri heilsu og vistvænni nýtingu auðlinda.
Byggingin er í Svansvottunarferli, sem felur í sér nákvæma úttekt á öllum þáttum verkefnisins – frá hönnun og efnisvali til loftgæða og orkunotkunar. Lokaniðurstaðan verður vistvæn bygging með minni umhverfisáhrifum og betri lífsgæðum fyrir íbúa.

Byggingaraðili: Þarfaþing hf.
Aðalhönnuður hússins: Arkís arkitektar ehf.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.ashamar50.is


Íbúð 403: 74,6 fm, tveggja herbergja íbúð á 4. hæð. Eigninni fylgir stæði í lokuðu bílastæðahúsi. 

Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, innréttingin er frá Selós, framhliðar eru matt beige, grábrúnar að lit, borðplötur eru úr 20mm Quartz steini með undirlímdum vaski úr stáli. Eldhústæki eru frá AEG. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir. Skúffur eru með mjúklokunarbúnaði, og LED lýsing undir efri skápum. Höldur eru svartar grip höldur frá Selós.
Alrými: Parket á gólfi, útgengt út á svalir.
Hjónaherbergi: 13,9fm, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Gráar flísar 60x120 að stærð á gólfi og á veggjum að hluta. Borðplötur eru úr 20 mm Quartz steini með undirlímdum vaski. innréttingin er frá Selós, framhliðar eru matt beige og grábrúnar að lit. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Hreinlætistæki eru frá Grohe og innihalda hitastýrð og innbyggð blöndunartæki í sturtu. Þvottaaðstaða er inn á baðherberginu, með innréttingu frá Selós undir þvottavél og þurrkara, beige og grábrún að lit. Vélrænt loftræstikerfi er í öllum íbúðum, og loftræstisamstæða er staðsett í efri skáp þvottainnréttingarinnar.
Svalir: 7,0fm.
Geymsla: 11,9fm í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.
Bílastæði: Stæði í lokuðu bílastæðahúsi fylgir eigninni. B39.
Inngarður: Inngarður lóðar er skjólgóður suðurgarður sem þjónar íbúum með leiktækjum, stígum og fjölbreyttum grænum svæðum. Hönnun garðsins leggur áherslu á notagildi og fegurð. Gönguleiðir verða hellulagðar og aðstaða verður fyrir útivist og samveru. Leiktæki fyrir börn verða sett upp í samræmi við samþykkt skipulag og hönnun lóðar.

Frekari upplýsingar í skilalýsingu.
Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamati þegar því hefur verið úthlutað eigninni.

Nánari upplýsingar veita:
Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.
Helga Pálsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8222123, tölvupóstur helga@fastlind.is.

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone