Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2000
svg
302,4 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 16. júní 2025 kl. 16:30 til 17:00

OPIÐ HÚS mánudaginn 16. júni frá kl. 16.30 - 17.00 við Steinás 7 í Garðabæ, allir velkomnir. Eiríkur Svanur Sigfússon lgfs verður á staðnum.

Lýsing

Virkilega vandað og vel skipulagt 5 herbergja einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr við Steinás 7 í Garðabæ.
Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 216,1 fm og bílskúr 71,7 fm, milliloft í bílskúr 14,6 fm, alls 302,4 fm skv. Fasteignaskrá.



Nánari lýsing:
Forstofa með skápum og náttúrustein á gólfi.
Lítið baðherbergi með sturtu,upphengt salerni, vola blöndunartæki, flísar á gólfi og veggjum.
Geymsla með hillum sem er um 8 fm.
Stofa og borðstofa í björtu alrými með aukinni lofthæð, fallegur arinn og útgengt út á suður verönd. Nokkur þrep eru úr stofu í borðstofu.
Borðstofan rúmgóð og í góðri tengingu við stofu og eldhús.
Eldhús með granít á bekkjum, ofn í vinnuhæð, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp. Innfelld uppþvottavél. Borðkrókur með útgengt út á austur verönd. 
Á austur verönd er heitur pottur í góðu skjóli. Verönd með skjólveggjum að hluta.
Mjög rúmgott sjónvarpshol er í tengingu við eldhús, stofu og borðstofu.
Hjónaherbergi með fataherbergi, uppgengt úr fataherbergi uppá mjög rúmgott geymsluloft með glugga.
Þrjú svefnherbergi búið er að opna á milli tveggja herbergja en lítið mál að loka aftur.
Baðherbergi með flísum á gólfum og veggjum, granít á bekkjum, vola blöndunartæki, handklæðaofn, nuddbaðkar, og hlaðin sturta. Vönduð innrétting og opnanlegur gluggi.
Þvottahúsið er rúmgott með útgengt út á verönd. Mjög góð innrétting með skápum, vaskur, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt tauskúffum undir.

Bílskúr er 86,3 fm með góðum gluggum, stæði fyrir 4 bíla. tvær innkeyrsluhurðar.
Heitt og kalt vatn, gestasnyrting og mjög gott geymsluloft yfir hluta bílskúrs með föstum stiga.
Auðvelt að breyta bílskúr í góða íbúð ef vilji er til þess.

* Hönnun hússins og efnisval er vandað og miðar að því að húsið sé viðhaldslétt.
* Húsið er steinað og gluggar og þakkantar eru ú PVC og steinskífur á þaki
* Aukin lofthæð sem gefur alrýminu einstakan blæ.
* Síberíu lerkipallur liggur meðfram austur- og suðurhlið hússins.
* Falleg og vel hönnuð lóð með náttúrulegum gróðri í bland, lóðin er um 860 fm 
* Næturlýsing í íbúðarhlutanum.
* Gólfefni íbúðarhluta eru náttúrusteinn og jatóba parket í fallegri samsetningu.
* Gólfhiti er í opnum rýmum, en ofnar í herbergjum.


Einstaklega vandað hús þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði með skemmtilegu alrými með góðu og skemmtilegu flæði.
Sjón er sögu ríkari !
Frábær staðsetning á þessum vinsæla stað í Garðabæ þar sem stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og stofnbraut. Einnig stutt í fallegar göngu-og hjólaleiðir.


Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og  Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone