Lýsing
Húsið er byggt árið 2021. Eignin skiptist í íbúð 111.3 m² og geymslu 22.6 m², samtals 133.9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, sér geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu á timburverönd, til suðurs, útsýni yfir Ölfusið.
Eldhús með eyju, AEG spanhelluborð og ofn í vinnuhæð, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu.
Fjögur svefnherbergi
Hjónaherbergi er inn af stofu/alrými, fjórfaldur fataskápur.
Barnaherbergin eru þrjú, tvöfaldur fataskápur í einu þeirra.
Baðherbergi, upphengt salerni, sturta, vaskinnrétting, speglaskápur og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar.
Geymsla er á jarðhæð, við hlið íbúðar.
Gólfefni: Harðparket er á öllum rýmum íbúðar nema anddyri og baðherbergi, þar eru flísar. Gólfhiti er í íbúðinni, Danfoss stýringar eru á veggjum.
Langahraun 11 er tveggja hæða fjölbýli,í húsinu eru fimm íbúðir, tvær á neðri hæð og þrjár á efri hæð.
Húsið er byggt úr forsteyptum samlokueiningum, útveggir eru ljósgráir að lit. Burðarvirki þaks eru forsteyptar holplötur með þakdúk, þak er einhalla. Hurðir og gluggar eru timburgluggar frá BYKO, svartir að lit. Handrið og svalahandrið eru stálhandrið, álklædd, svört að lit að utanverðu. Framan við hús er hellulögð gönguleið. Lóð er þökulögð, 11 bílastæði eru í sameign á lóð, þar af eitt sér merkt stæði fyrir hreyfihamlaða. Gert er ráð fyrir möguleika á hleðslustöðvum fyrir rafbíla en hleðslustöðin sjálf er ekki uppsett. Húsfélag er starfrækt í eigninni.
Lóð er sameiginleg 1186.2 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-9029.
Stærð: Íbúð 111.3 m². Geymsla 22.6 m² Samtals 133.9 m².
Brunabótamat: 71.650.000 kr.
Fasteignamat: 72.000.000 kr
Byggingarár: 2021.
Byggingarefni: Steypa.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala