Lýsing
FASTMOS kynnir: Björt og vel skipulögð 75,5 m2, 3ja herbergja íbúð á 2.hæð í fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað við Furugrund 24 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, baðherbergi, eldhús og tvö svefnherbergi. Sérgeymsla er í kjallara (er ekki skráð í fermetratölu eignarinnar). Svalir í vesturátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning, rétt við Fossvogsdal, stutt frá skóla og leikskóla, íþróttasvæði HK og Víkings ásamt allri helstu þjónustu.
Skv. upplýsingum frá seljanda var farið í endurbætur á gluggum, hurðum og þakrennum síðasta sumar. Árið 2022 var farið í múrviðgerðir á tröppum. Árið 2021 var mynddyrasími settur upp í stigagangi. Árið 2019 var stigagangur málaður og teppi endurnýjað. Baðherbergi og eldhús var endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa er með korkflísum á gólfi og fataskáp.
Stofa og borðstofa eru með korkflísum á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar svalir í vesturátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með korkflísum á gólfi og hvítri eldhúsinnréttingu með innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni og helluborði
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, niðurfelldum vaski, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtu. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi
Sérgeymsla er á neðstu hæð. Er ekki skráð í fermetratölu eignarinnar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt er á neðstuhæð.
Sameiginlegt þvottahús með vélum er á neðstuhæð.
Verð kr. 63.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.