Lýsing
LAUS VIÐ KAUPSAMNING
Nánari lýsing: Þegar gengið er inn í íbúðina er komið inn í hol/stofu, 3 svefnherbergi, 2 mjög rúmgóð og annað af þeim með fataherbergi inn af, þriðja herbergið minna. Baðherbergið er lítið með baðkari og hvítri innréttingu. Eldhús með hvítri innréttingu, pláss fyrir uppþvottavél/þvottavél við hliðina á innréttingunni. Á íbúðinni eru nýtt vinylparket en flísar á baði.
Töluvert er af súðargeymslum í íbúðinni og geymsluris tilheyrir íbúðinni samkvæmt eignaskiptasamningi.
Húsið hefur fengið gott viðhald en þakið var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Húsið var steinað árið 2024. Hluti af gluggum í húsinu voru endurnýjaðir. Allir gluggar í íbúðinni eru nýlegir. Nýtt vinylparket er á íbúðinni og nýjar flísar á baðherbergi.. Nýtt salerni og ný innrétting á baðherbergi.
Í sameign hússins er sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína þvottavél. Sameiginlegt salerni í sameign.
Nánari upplýsingar veitir Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 894-1976 / audun@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.