Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hilmar Gunnlaugsson hrl
Sigurður Magnússon
Bryndís Björt Hilmarsdóttir
Vista
einbýlishús

Dalskógar 9

700 Egilsstaðir

115.000.000 kr.

475.993 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2175581

Fasteignamat

87.550.000 kr.

Brunabótamat

121.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1991
svg
241,6 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  inni@inni.is
 

INNI fasteignasala, 580 7905, kynnir: Dalskógar 9, Egilsstaðir, einkasala. 
Glæsilegt hús á frábærum fjölskylduvænum stað stað. Komið er inn í flísalagða forstofu með tvöföldum fataskáp. Þar inn af er gangur/rými, einnig flísalagður. Strax þar til hægri er baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum. Sturta er flísalögð með rennihurðum, mjög rúmgóð. Upphengt salerni, vaskur í innréttingu, spegill með ljósum, handklæðahengi og skápar. Næst er komið inn í þvottahús með flísalögðu gólfi, innréttingar, borðplata og vaskur. Útgengt úr þvottahúsi á sömu hlið og aðalinngangur. Í norðvesturhorni er eldhúsið, svartar flísar á gólfi, AEG eldhústæki, ofn í vinnuhæð, pláss fyrir tvöfaldan ísskáp sem getur fylgt ef um semst, góð innrétting með granít á bekkjum, borðkrókur. Eldhúsborðið er fast og fylgir með. Í stofu er parket á gólfi, en stofa skiptist í borðstofu, hefðbundna stofu og setustofu með arni. Gott flæði á milli þessara rýma. 
Gengið er upp flísalagðan stiga á efri hæð. Þar er komið í stórt parketlagt hol með stórum kvisti og mikilli birtu. Í suður- og norðurhlið eru sitt hvort tvö herbergin, alls fjögur, og fyrir miðju til austurs er baðherbergið. Hjónaherbergi er með fimmfaldan góðan fataskáp, gengt út á stórar svalir meðfram allri suðurhliðinni og góðu útsýni yfir garðinn. Allt rúmgóð herbergi, að hluta undir súð. Parket lítur ágætlega út, helst í holi þar sem það virðist farið að láta á sjá. Á baði er baðkar, töluverðir skápar, stór spegill með lýsingu.
Skipt hefur verið um allar hita- og vatnslagnir í húsinu.
Bílskúr er með rafdrifinni hurð, flísalagður, uppteknu lofti að hluta, geymslurými að öðru leyti. Vinnuborð innst, vaskur í innréttingu nálægt bílskúrshurð. Manngeng hurð á vesturhlið, beint á móti aðalinngangi í íbúðarhúsið. Skipt hefur verið um þakplötur, sett stallað ál og sérstakur þykkur þakpappi.
Bílastæði, rými milli bílskúrs og húss og fyrir aftan bílskúr er hellulagt. Geymsluskúr stendur í garði fyrir aftan bílskúr. Góður pallur út af stofu, með heitum potti. Að vestanverðu eru flísar meðfram húsinu, skjólveggur að götu. Snyrtilegur garður.  

INNI fasteignasala ehf

INNI fasteignasala ehf

Fagradalsbraut 11, 700 Egilsstaðir
phone
INNI fasteignasala ehf

INNI fasteignasala ehf

Fagradalsbraut 11, 700 Egilsstaðir
phone