Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
svg

85

svg

68  Skoðendur

svg

Skráð  11. apr. 2025

fjölbýlishús

Mánatún 7

105 Reykjavík

124.900.000 kr.

965.971 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2316532

Fasteignamat

96.350.000 kr.

Brunabótamat

69.430.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2014
svg
129,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

* Eignin er seld og í fjármögnunarferli *

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega bjarta, fallega og vel skipulagða 129,3 fermetra 3ja herbergja íbúð á 6. hæð með tvennum svölum, glæsilegu útsýni og með sérmerktu bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins. 
Eingöngu tvær íbúðir eru á hæð sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin. Stór garður er á milli húsanna sem er virkilega fallegur með harðviðarveröndum, hellulögðum flötum og leiktækjum fyrir börn. Góð aðkoma er að húsinu og fjöldi sameiginlegra bílastæða á lóð.

Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottaherbergi, borðstofu, stofu, gang, baðherbergi, tvö svefnhverbergi og sérgeymslu á jarðhæð ásamt sérmerktu bílastæði. 

Lýsing eignar:

Forstofa, parketlögð og með fataskápum.
Hol, parketlagt.
Borðstofa, parketlögð, björt og rúmgóð með útgengi á mjög rúmgóðar og skjólsælar svalir til suðurs.
Eldhús, opið við borðstofu, parketlagt og bjart með fallegum innréttingum úr eik, hvítum efri skápum, flísum á milli, ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Stór eyja með góðum hirslum, helluborði, háfi og borðaðstöðu.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf, vélar í vinnuhæð og vaskur.
Stofa, parketlögð og rúmgóð með útgengi á litlar svalir til norðvesturs með fallegu útsýni.  
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi, rúmgott, parketlagt og með fataskáp.
Baðherbergi, rúmgott, flísalagt gólf og veggir, innrétting og skápur, vegghengt wc, handklæðaofn og flísalögð sturta með sturtugleri.
Hjónaherbergi, rúmgott, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg.

Í kjallara hússins eru:
Sérmerkt bílastæði með möguleika á rafhleðslustöð. 
Sérgeymsla, sem er með góðri lofthæð og er 12 fermetrar að stærð.
Á jarðhæð hússins er sameiginleg hjólageymsla með aðgengi út á lóð til norðurs.

Húsið að utan er klætt með áli og er því viðhaldslítið.

Lóðin, sem er 14.963,0 fermetrar að stærð og er sameiginleg með húsunum nr. 7-17 við Mánatún, er fullfrágengin með stórum inngarði þar sem er fjöldi sameiginlegra bílastæða, stórar harðviðarverandir, stórar hellulagðar verandir og stígar og falleg lýsing.  

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, mjög miðsvæðis þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, miðborgina, Laugardalinn o.fl. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. des. 2015
49.700.000 kr.
50.500.000 kr.
129.3 m²
390.565 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone