Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 129,2 m2, 5 herbergja endaíbúð með sérinngangi á jarðhæð ásamt bílastæði í bílageymslu á vinsælum stað við Þrastarhöfða 2 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Stór timburverönd í vesturátt. Búið er að setja upp tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla á bílaplani. Frábær staðsetning. Grunnskóli, leikskóli, líkamsrækt og sundlaug eru á móti húsinu hinumegin við götuna. Einnig er mjög stutt á golfvöll.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa/Borðstofa er í rúmgóðu og björtu rými með parketi á gólfi. Fallegt útsýni er úr stofunni. Úr stofu er gengið út á timburverönd.
Eldhús er með innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er blástursofn, helluborð, háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi
Svefnherbergi nr. 4 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er með innréttingu og flísum á gólfi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð
Geymsla er á hæðinni við hliðiná íbúðinni. Er skráð 8,1 m2.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð við hlið aðalinngangsins.
Verð. 99.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.