Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt 180,1 m2, parhús ásamt auka íbúð í bílskúr við Lindarbyggð 13 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 180,2 m2, þar af íbúð á hæð 158,2 m2 og bílskýli 22,0 m2. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, sólstofu, þrjú svefnherbergi, fataherbergi/geymslu, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Bílskúrnum hefur verið breytt í stúdíó íbúð með baðherbergi. Afgirtur garður með timburverönd og garðhúsi. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu og hleðslustöð. Frábær staðsetning í grónu og friðsælu hverfi í Mosfellsbæ, leiksskóli í næsta nágrenni.
Skv. upplýsingum frá seljanda var farið í eftirfarandi framkvæmdir á síðastliðnum árum: Skipt var um járn, pappa og þakkantur endurnýjaður árið 2019. Baðherbergi var endurnýjað árið 2021. Bílskúr breytt í íbúð. Endurnýja útbyggingu í stofu og nýr gluggi á hlið hússins. Sett var 3 fasa rafmagn í húsið og nýja rafmagnstöflu ásamt hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Garðhús, timburverandir og girðing í kringum garð.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Alrými er opið og bjart með flísum á gólfi. Skiptist í sjónvarpshol, borðstofu og sólstofu. Úr sólstofu er gengið út á timburverönd og bakgarð í suður- og vesturátt.
Eldhús er með flísum á gólfi og innréttingu. Í innréttingu er ofn, helluborð, vifta og niðurfellur vaskur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og stórum ísskáp í innréttingu. Úr eldhúsi er innangengt í þvottahús.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er útgengt út á lóð fyrir framan hús.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi. Við hliðiná hjónaherbergi er geymsla sem er nýtt í dag sem fataherbergi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, skolvask, vegghengdu salerni, handklæðaofn og "walk in" sturtu með innbyggðum tækjum.
Auka íbúð (bílskúr) er með parketi á gólfi og lítill innréttingu með vaski. Baðherbergi er í íbúðinni með flísum á gólfi, vegghengdu salerni og sturtu.
Verð kr. 131.000.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.