Upplýsingar
Byggt 1996
220,8 m²
5 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Suðurmýri 8 á Seltjarnarnesi, 220,8 fm einbýlishús sem skiptist í 176,3 fm hús og 44,5 fm bílskúr. Húsið er skráð stálgrindarhús.Fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús á Seltjarnarnesi, stutt göngufæri í tvo grunnskóla, Háskóla Íslands, tvær sundlaugar, tónlistarskóla, KR og Gróttu, verslun, bakarí og bókasafn. Leikvöllur beint fyrir aftan húsið.
Eignin skiptist í neðri hæð, sólskála, forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, snyrtingu og á efri hæð eru 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Góður stigi er upp á geymsluris sem er yfir öllu húsinu.
Nánari lýsing eignarinnar:
Jarðhæð: komið er inn í rúmgóða forstofu/sólskála og þaðan inn í hol með gestasnyrtingu. Á neðri hæð eru stofa, borðstofa og opið eldhús með eyju og upprunalegum viðarinnréttingum. Neðri hæðin er opin og björt og eru flísar á öllum gólfum. Hægt að er að ganga út í garð út frá eldhúsi.
Efri hæð: þrjú rúmgóð svefnherbergi og er útgengt út á rúmgóðar svalir frá einu þeirra. Baðherbergið er rúmgott með baðkari og sturtu, innréttingu og glugga. Við hlið þess er þvottahús. Stigi er upp í rúmgott geymsluris.
Bílskúr er frístandandi og með rafmagni og hita. Fyrir framan hann er sér bílastæði.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Þetta afbragðsfjölskylduhús er í öruggu göngufæri við þrjá grunnskóla, tvær sundlaugar, tónlistarskóla og fjölbreyttar tómstundir, m.a. stutt í bæði KR og Gróttu, auk þess að vera í þægilegu göngufæri við Háskóla Íslands. 5 mínútur í búð, bókasafn og bakarí að ógleymdri ísbúð, 3 mínútur í fjöru og útivistarsvæði.
Rólegt og góð hljóðvist, góðar svalir og sólríkur pallur.
Allar nánari upplýsingar gefa :
Kjartan Hallgeirsson lögg. fasteignasali í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Alfreð B. Valencia - aðstoðarmaður fasteignasala í síma: 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook