Lýsing
Það sem meðal annars hefur verið gert er að grindverk verið steypt að nýju, nýjar innihurðar og gólfefni ásamt því að húsið var málað. Fyrri eigendur höfðu m.a. endurnýjað raflagnir, tveir inngangar eru í húsið.
Bílskúrinn er með hárri bílskúrshurð og er rúmgóður, þar sem möguleiki er á að hafa aukaíbúð og er með niðurfallslagnir fyrir frárennsli hentar frábærlega fyrir þá sem geta dundað sér í bílskúrum vegna vinnu eða áhugamála. Köld geymsla við húsið ásamt litlum geymsluskála við hlið bílskúrs. Það er bara einn bílskúr sem er ca 40 fm en hefur tvöfalda skráningu hjá FMR
Íbúð á hæð er 74,0 fm (merkt 01-0101), íbúðarherbergi í kjallara er 74,0 fm (merkt 01-0001), bílskúr 24,0 fm (merkt 02-0101) og bílskúr 16,0 fm (merkt 02-0102) samtals er eignin skráð 188,0 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og upphengi.
Hol er með vínilparketi á gólfi.
Stofan er tvöföld með vínilparketi á gólfi.
Eldhús er með harðparketi á gólfi og er í góðu flæði með stofunni.
Svefnherbergin eru 4 og eru með harðparketi á gólfi, skápar í aðalsvefnherbergi.
Baðherbergin eru tvö gestabaðherbergi á efri hæð er með flísum í hólf og gólf, upphengt wc og skáp undir vask. Aðalbaðherbergi er á neðri hæð og er flísalagt í hólf og gólf, upphengt wc, innrétting undir vask, baðkar og handklæðaofn.
Þvottahús er á neðri hæð hússins.
Geymsla háaloft er yfir hluta hússins, tveir geymsluskúrar í garði og rúmgóður bílskúr.
Bílskúr er með stein á gólfi og góðu geymsluplássi. Bílskúrinn myndar eitt 40 fm rými og þar er möguleiki á að vera með aukaíbúð.
Vegna mikillar sölu vantar okkur allar stærðir- og gerðir fasteigna á sölu, mikill metnaður, fagleg vinnubrögð, frítt verðmat"
"Ef þú ert í söluhugleiðingum og vantar trausta og metnaðarfulla þjónustu, hafðu þá samband".
"Við hjá STOFN Fasteignasölu - Setjum þig í fyrsta sætið"
"Við erum með hjartað á réttum stað".
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.