Lýsing
Eignaskiptasamningur: Eignin er 5 herbergja íbúð á 2 hæð rými 02-01 (124,9 fm), ásamt sameiginlegu þvottahúsi rými 01-05. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign allra og hlutdeild í sameiginlegri lóð samkvæmt hlutfallstölum. Eigninni 02-01 fylgir bílskúr í mhl 02, birt stærð 24,9 fm.
Nánari lýsing eignar: Sameiginlegur inngangur. Komið er inn á rúmgóðan gang með parketi á gólfi og fataskáp. Á hægri hönd við inngang er eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu, borðkrókur og gluggi á tvo vegu. Andspænis inngangi eru tvær bjartar og rúmgóðar stofur með útgangi út á svalir. Möguleiki að breyta annarri stofunni í fimmta svefnherbergi. Fjögur svefnherbergi og eru tvö þeirra með fataskáp. Inngangur frá stigagangi inn í eitt af þessum fjórum herbergjum. Baðherbergið er upprunalegt og er það flísalagt með glugga. Eigninni fylgir sameiginlegt þvottahús ásamt sameiginlegum tveimur geymslum. Gólfefni íbúðar: parket að mestu á gólfum fyrir utan eldhús og baðherbergi en þar er dúkur. Eigninni fylgir aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi ásamt tveimur sameiginlegum útigeymslum. Eigninni fylgir eins og áður sagði 24,9 fm bílskúr og er hann með heitu og köldu vatni ásamt rafmagni. Þess ber að geta að bílskúrarnir eru ekki stúkaðir af með vegg á milli.
Íbúðin afhendist 1. feb 2025 í síðasta lagi.
VIRKILEGA VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ MIÐSVÆÐIS Í BORGINNI - STUTTA Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU.
Enburbætur síðastiðin ár:
* Hús múrviðgert og málað að utan 2023 og 2024.
* Nokkrir gluggar verið lagfærðir ekki endurnýjaðir.
* Skólplögn undir húsi 2020 og að lóðarmörkum.
* Drenlögn á framhlið og þakniðurföll tengd á öllum hliðum.
* Rafmagnstafla 2017, staðsett í geymslu í kjallara fyrir húsið, greinatafla í íbúð hefur verið endurnýjuð.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat