Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Birkihraun 6

660 Mývatn

44.500.000 kr.

393.805 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2163348

Fasteignamat

28.800.000 kr.

Brunabótamat

60.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1981
svg
113 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 23. apríl 2025 kl. 14:00 til 16:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Birkihraun 6 - Vel skipulagt 5 herbergja einbýlishús á einni hæð í Mývatnssveit - stærð 113,0 m².


Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Forstofa er með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Eldhús, hvít snyrtileg innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi og vínyl parket á gólfi. Borðkrókur og gangur eru með plast parketi á gólfi. 
Stofan er ágætlega rúmgóð, með plast parketi á gólfi og stórum gluggum og hurð út á verönd með timbur skjólveggjum.
Svefnherbergin eru fjögur, ýmist með parketi eða plast parketi á gólfi og í tveimur herbergjum eru fataskápar. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri viðarlitaðri innréttingu, wc, baðkari, sturtu og opnanlegum glugga.
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar eru flísar á gólfi og bekkur með vask.
Geymsla er inn af þvottahúsinu með flísum á gólfi, hillum og opnanlegum glugga. 

Annað
- Þak var endurnýjað árið 2022 
- Gler hefur verið endurnýjað.
- Búið er að endurnýja hluta af hitaveituofnum.
- Bílaplan er malbikað. 
- Eignin er laus til afhendingar í maí 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone