
Lýsing
Hrafnagilsstræti 6 sem er steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara, upphaflega teiknað af Halldóri Haldórssyni 1932, stendur á fallegum stað á brekkunni á Akureyri með fallegu útsýni.
Húsið er skráð 260,1 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðarhúsið sjálft 212,4 fm., bílskúr 28,8 fm. og geymsla sem breytt hefur verið í stúdíó-herbergi með sér baðherbergi, 18,5 fm. Húsið er mikið endurnýjað á síðastliðnum 18 árum í tíð núverandi eiganda m.a. lagnir og dren, rafmagn og töluvert af gluggum auk innréttinga og fleira.
Nánari lýsing; Aðalíbúðin er á miðhæð og efri hæð, komið er inn í forstofu og þaðan inn í hol sem tengir aðrar vistarverur.
Stofan liggur í L á hæðinni, vegleg með skemmtilegri gluggasetningu á tvo vegu og góðu flæði og birtu.
Herbergin eru tvö, annað ágætlega rúmgott og auðvelt að tengja það stofunni, hitt heldur minna en notalegt hornherbergi.
Eldhúsið er með veglegri innréttingu með góðu geymsluplássi og vinnuaðstöðu, góðum borðkróki, glæsileg stór eldavél með þreföldum ofni og háf setja skemmtilegan svip á rýmið.
Á efri hæðinni eru 3 rúmgóð svefnherbergi, fullbúið baðherbergi með sturtu og aðgengi að svölum með góðum heitum potti.
Baðherbergið var algerlega endurnýjað og stækkað til að koma þar fyrir góðum sturtuklefa og opnanlegum glugga og hurð út á svalir.
Frá miðhæðinni liggur steyptur stigi niður í hol sem tengir saman þvottahús, stúdíóherbergi og bílskúr, þar er inngangur frá Laugagötu.
Stúdíó herbergið er með glæsilegu baðherbergi og sérinngangi, innangengt frá holinu.
Bílskúrinn er 28,8 fm., töluvert endurnýjaður sl. ár, með góðri lofthæð og gluggum, rafdrifin hurð og gönguhurð á bakhlið.
Aukaíbúð á neðstu hæð hússins er ca 51 fm, með sér inngangi frá austurhlið hússins.
Hún er nýlega standsett með einu svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbergi. Gluggar eru af góðri stærð og fín birta í íbúðinni.
Góð aðkoma er að húsinu frá Laugargötu, þar eru 2-3 bílastæði.
Húsið er einstaklega vel staðsett á brekkunni, göngufjarlægð við miðbæ með allri þjónustu, sundlaug og Lystigarðinn.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.