Lýsing
Stærð eignar eru alls 47,4 m2 og þar af er sér geymsla í sameign 6,5 m2. Bókið skoðun hjá Hallgrími í síma 896-6020 eða með tölvupósti á netfangið hallgrimur@trausti.is
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn á parketlagt anddyri með góðum fataskáp
Alrými stofu og eldhúss er rúmgott og gengið er út á svalir í vestur og norður úr stofunni.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu frá Axis og quartz steini á borðplötu.
Svefnherbergið er með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergið er flísalagt að hluta og er með rúmgóðum sturtuklefa, Axis innréttingu og upphengdu salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherberginu.
Sér geymsla íbúðar í sameign, alls 6,5 m2
Hjóla og vagnageymsla í sameign
Gólfhiti - Gólfsíðir gluggar - harðparket á gólfi og flísar á baðherbergi - Quartz borðplötur - Axis innréttingar - Siemens eldhústæki frá Smith&Norland. Innbyggður kælir og frystir og innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð og Combi-bakaraofn. Nýlegt og vandað, vel staðsett lyftufjölbýli. Gluggar eru ál-tré gluggakerfi. Karmar glugga er úr tré og hvítlakkaðir en klæddir með áli að utanverðu. Öll opnanleg fög eru úr ál-tré og læsningarjárn eru með næturstillingu. Tvöfalt verksmiðjugler/einangrunargler frá viðurkenndum framleiðanda. Mynddyrasími er við alla innganga í stigahús. Möguleiki er á að leigja bílastæði bílageymslu hússins.
Þessi eign hentar vel fyrir fyrstu kaupendur og er örstutt í menningu miðbæjarins, niður að sjó og í HÍ. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali í síma 896-6020, hallgrimur@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.