Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2020
106,3 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Útsýni
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Geirþrúðarhagi 4b - 203
Nýleg fimm herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð vestur enda í fjölbýlishúsi í Hagahverfi Eignin er samtals 106,3 fm, með geymslu innan íbúðar.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, fjögur svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu.
Forstofa er með parket á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús og stofa í opnu rými, þar er parket á gólfi, í eldhúsi er vönduð innrétting með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Úr stofu er gengið út um rennihurð á rúmgóðar svalir.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, hvíti innréttingu með speglaskáp fyrir ofan, upphengdu salerni og sturtu. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er í innréttingu.
Geymsla innan íbúðar er skv. teikningu 5,1 fm að stærð og þar er parket á gólfi, skápur og opnanlegur gluggi.
Sameiginleg geymsla/tæknirými er undir stigapalli.
Annað:
-Hljóðdempandi loftaplötur eru í öllu rýmum íbúðar nema á baðherbergi.
-Allar innréttingar eru plastlagðar og koma frá GKS.
-Frystiskápur í geymslu
-Hvítar innihurðar
-Við bílaplan eru staurar með rafmagnstenglum merktir íbúðum.
-Leikvöllur er beint fyrir framan húsið
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. jan. 2024
58.650.000 kr.
68.000.000 kr.
106.3 m²
639.699 kr.
14. nóv. 2019
3.450.000 kr.
43.600.000 kr.
106.3 m²
410.160 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025