Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Júlíus Margeir Steinþórsson
Jóhannes Ellertsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
101,9 m²
svg
4 herb.

Lýsing

Eignasala.is
Nánari lýsing eignar:
Um er að ræða innflutt timburhús frá framleiðandanum SEVE í Eistlandi. Húsið er raðhús með 4 íbúðum. Stærð íbúða er annars vegar 101,9 og hins vegar 82,1 fm. Húsið er reist á staðsteyptum sökkli. Húsið stendur á 1.320 fm lóð. Stærð sérnotaflata einstakra íbúða sbr. uppdrætti aðalhönnuðar og eignaskiptalýsingu.

Frágangur utanhúss:
Útveggir: Útveggir eru timburklæddir með liggjandi klæðningu. Klæðning er meðhöndluð með svartri þekjandi viðarvörn, sem gefur svartan / dökkgráan lit.
Að innan eru útveggir almennt klæddir með Fermacell (fíbergips) og málaðir með ljós-gráum lit.
Útveggir í útigeymslu eru klæddir með OSB krossvið.
Þak: Að utan er þak klætt með tveimur lögum af ábræddum þakpappa ofan á OSB þakkrossvið. Áfellur og þakrennur eru með innbrenndum hvítum lit.
Að innan er þak klætt með annarsvegar hvítmáluðum gipsplötum og hinsvegar hvítum loftaplötum með áferð.
Raflagnir: Lampar og lýsing er fullfrágengin. Útilýsingu er stýrt með sólúri í rafmagnstöflu.
Lagnir: Öll inntök eru við aðalinngang, tengigrind og dreifing lagna er geymslum íbúða.
Hitalagnir eru steyptar í botnplötu hússins. Lagnir fyrir tengingar á útikrönum, vatnsfæðing að heitum potti og frárennsli verða til staðar.
Gluggar og útihurðir: Gluggar og útihurðir eru PVC. Hurðar eru með 3ja. punkta læsingum. Svalahurðir eru með opnunarstillingu. Hurð er úr stofu að sólpalli. Allir gluggar eru með opnunarstillingum. Allt gler er K-gler.
Trépallar: Timburpallur, ca 20 fm er á baklóð íbúða. Frágengnir skjólveggir eru á milli íbúða við timburpall Frágangur innanhúss:
Gólf: Gólfplata hússins er einangruð, járnbent og staðsteypt. Gólf hússins eru lögð með harðparketi. Gólflistar eru hvítlakkaðir. Gólf baðherbergja eru flísalögð með grófum náttúrulegum steinflísum. Gólf í útigeymslu er ómeðhöndluð steinsteypa.
Veggir: Veggir innanhúss eru klæddir fermacell plötum og málaðir í ljós-gráum lit (RAL 9002). Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir með grófum náttúrulegum steinflísum. Veggir í útigeymslu eru klæddir OSB krossvið.
Innihurðar: Innihurðar eru hvít-lakkeraðar. Húnar og lykillauf eru svört að lit.
Innréttingar: hvítar Innréttingar með melamin áferð. Svartlitaðar höldur. Hvít eldhúsinnrétting með eyju.
Eldhústæki Bökunarofn með blæstri. Niðurfellt span-helluborð. Stór eldhúsvaskur og svart blöndunartæki Grohe eða sambærilegt eru AEG frá Ormsson eða sambærilegt frá innlendum innflutningsaðila.
Baðinnrétting og frágangur hvítar/ljós gráar með melamin áferð. Vaskur og blöndunartæki ofan-á borðplötu. Svört blöndunartæki frá Grohe eða sambærilegt. Sturtuklefar eru með þil úr hertu gleri. Svört blöndunartæki, sturtuhausar og handbrúsur í sturtum eru frá Grohe eða sambærilegt. Salerni eru innbyggð með Ceberit eða Grohe kassa, öll blöndunartæki eru frá Grohe eða sambærilegt.
Raflagnir: Raflagnir eru fullfrágengnar. Stofntafla er í inntaksrými. Ljós eru LED ljós með warm lýsingu. Ljós í stofu eru dimmanleg. Lágspennukerfi og sjónvarps/tölvutengingar í öllum rýmum. Rofar og tenglar eru svartir að lit frá Berker eða sambærilegt Gert er ráð fyrir tengimöguleika fyrir rafhleðslustöð/rafbílahleðslu um ídráttarrör frá aðaltöflu að tengistað.
Lagnir: Allar hitalagnir eru steyptar í gólfplötu hússins og stýrt með Danfoss hitanemum og stýringum.
Annað: Öll gluggalaus rými hússins eru loftræst.
Frágangur lóðar: Lóð: Bílastæði eru fullfrágengin með hellulögn, járnbentri steinsteypu. Lokað, forsteypt sorptunnugerði fyrir 3 sorpílát er við hverja íbúð. Lóð er fullfrágengin með grasþakningu. Fullfrágenginn timburpallur og skjólveggir eru á baklóð.
ATH myndir eru af öllum húsunum við Háteig 42- 46 Garði Suðurnesjabæ.

Byggingaraðili: Heiðarhús ehf
Aðalhönnuður hússins er Guðmundur Þórðarson, Glóra ehf, Reykjanesbæ
Burðarþols og lagnahönnuður hússins er Kristinn Eiríksson, Tensio ehf, Reykjavík.
Raflagnahönnuðir eru Gísli Lárusson / Guðni Lárusson, G-Lár ehf, Reykjanesbæ

Kaupandi greiðir væntanlegt skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.
nánari upplýsingar á skrifstofu hafnargötu 90a í síma 4206070 eða eignasala@eignasala.is, joi@eignasala.is og julli@eignasala.is 

Eignasala.is og Leigumiðlun Suðurn.

Eignasala.is og Leigumiðlun Suðurn.

Hafnargötu 90, 230 Keflavík
Eignasala.is og Leigumiðlun Suðurn.

Eignasala.is og Leigumiðlun Suðurn.

Hafnargötu 90, 230 Keflavík