Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 75,1fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgent er út á sérafnotareit úr stofunni/alrýminu og er umræða innan hússins um að aðilar geti gert sólpall í samam útliti.
Eldhús er opið við stofu með góðri eldhúsinnréttingu Voké3, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott, gott skápapláss og parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, góð innrétting, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, vegghengt salerni. Flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla er innan eignar með parketi á gólfi.
Íbúðin er með ofnakerfi.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum.
Um er að ræða virkilega fallega og vel skipulagða íbúð með mjög góðu aðgengi á Akranesi. Stutt í leikskóla, golfvöll, og skógræktina.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteig
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.